Danska landsliðskonan Mette Tranborg hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér fyrir Evrópumót kvenna sem fram fer í desember. Hin þrítuga hægri skytta ungverska stórliðsins FTC segir að lífið án landsliðsverkefna hafi reynst henni vel og ætlar því að halda áfram að einbeita sér að félagsliðinu og lífinu utan handboltans. Tranborg hefur verið fastamaður í danska landsliðinu undanfarin ár og leikið 130 landsleiki. Hún hefur tekið þátt í átta stórmótum með Danmörku og verið mikilvægur hlekkur í liðinu. Hún hefur hins vegar ekki leikið með landsliðinu síðan í mars og ákvað að gefa ekki kost á sér í landsliðsverkefni Dana í september. Nú hefur hún staðfest að hún muni heldur ekki taka þátt í Golden League síðar í þessum mánuði eða á Evrópumótinu í desember. „Ég hef áttað mig á því að það hefur hentað mér mjög vel síðasta árið að vera ekki með landsliðinu. Það þýðir að ég verð ekki með í næsta landsliðsverkefni og heldur ekki á lokamótinu í desember. Þetta er það sem hentar mér best eins og staðan er núna,“ sagði Tranborg í samtali við TV 2 Sport. Ákvörðunin kemur á mikilvægum tímapunkti fyrir danska landsliðið sem er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið. Tranborg hefur ekki lýst því yfir að landsliðsferlinum sé endanlega lokið og útilokar því ekki endurkomu síðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.