Einn leikur fór fram í norsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Tryggvi Garðar Jónsson og liðsfélagar hans í Viking mættu Nærbø á útivelli. Fyrir leik liðanna voru Viking með fjögur stig í tólfta sæti deildarinnar á meðan heimamenn voru í sjötta sæti með tveimur stigum meira eða sex stig. Leikurinn í kvöld var því miður aldrei spennandi, heimamenn voru töluvert sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu og leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 19-12. Gestirnir frá Stafangri komust aldrei nær Nærbø því heimamenn bættu bara í og unnu að lokum þægilegan ellefu marka sigur, 39-28. Tryggvi Garðar skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir gestina sem eru áfram í tólfta sæti á meðan Nærbø hoppar upp í fjórða sætið. Úrslit kvöldsins: Nærbø 39-28 Viking

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.