Álaborg missir tvo leikmenn í meiðsli
Tom Weller/ AFP)

Danska stórliðið Álaborg hefur orðið fyrir tveimur áföllum fyrir komandi leik í Meistaradeild Evrópu sem fram fer í dag.

Markvörðurinn Niklas Landin og sænska skyttan Lukas Nilsson verða báðir frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla. Þá er norska stórstjarnan Sander Sagosen enn ekki tilbúin til að snúa aftur á völlinn.

Landin meiddist undir lok sigurleiks Álaborgar gegn KIF Kolding um helgina þegar skot hafnaði á fingri hans með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð sem þurfti að sauma. Gert er ráð fyrir að hann verði frá keppni í allt að tvær vikur.

Fabian Norsten mun verja mark liðsins í fjarveru Landins en hinn ungi Mikkel Jæger verður honum til aðstoðar.

Staðan er öllu alvarlegri hjá Lukas Nilsson sem var nýlega kominn til baka eftir kálfameiðsli. Rannsókn á mánudaginn leiddi í ljós nárameiðsli og verður Svíinn frá keppni næstu fjórar til sex vikurnar. Þá er Sander Sagosen enn í endurhæfingu og nokkuð í að hann verði leikfær.

Álaborg tekur á móti króatíska liðinu HC Zagreb í Meistaradeild Evrópu í dag og verður því án nokkurra lykilmanna í þeim leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top