Portúgalski línumaðurinn Victor Iturriza, leikmaður rúmenska liðsins Dinamo Búkarest, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann í Meistaradeild Evrópu eftir brot í leik liðsins gegn Barcelona í síðustu viku. Aganefnd Handknattleikssambands Evrópu (EHF) tilkynnti niðurstöðu sína í málinu í dag en Iturriza fékk beint rautt spjald þegar rúmar 33 mínútur voru liðnar af leik liðanna í síðustu viku. Eftir að hafa farið yfir atvikið komst aganefnd EHF að þeirri niðurstöðu að brot Iturriza hefði verið gáleysislegt og stórhættulegt. Var brotið metið sem alvarleg óíþróttamannsleg hegðun og leikmaðurinn því úrskurðaður í eins leiks bann. Iturriza missir þar með af næsta leik Dinamo Búkarest í Meistaradeildinni sem er einmitt gegn Barcelona á morgun, fimmtudaginn 15. október. Dinamo og Barcelona mætast því í annað sinn á einni viku en liðin eru saman í riðli í Meistaradeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.