Haukar mæta RK Levalea 2010 Nikšić frá Svartfjallalandi í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handbolta en dregið var í þriðju umferð keppninnar í morgun. Haukar eru eina íslenska kvennaliðið sem tekur þátt í Evrópukeppni á þessu tímabili og voru í efri styrkleikaflokki þegar dregið var. Andstæðingar Hauka frá Svartfjallalandi tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitunum með því að leggja Differdange frá Lúxemborg að velli í annarri umferð keppninnar. Levalea vann einvígið samanlagt með þrettán mörkum, 56-43. Fyrri leikir 32-liða úrslitanna fara fram helgina 7.-8. nóvember og síðari leikirnir helgina 14.-15. nóvember. Haukar eiga heimaleikjarétt í fyrri leiknum samkvæmt drættinum en liðin geta samið um að leika báða leikina á sama stað. Sigurliðið úr einvíginu tryggir sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins sem fara fram í janúar á næsta ári. Alls taka 32 lið þátt í þriðju umferð keppninnar og þar á meðal eru færeysku liðin H71, Neistin og VÍF. H71 mætir HC Galychanka frá Úkraínu, Neistin leikur gegn LK Zug frá Sviss og VÍF mætir HK Slovan Duslo Šaľa frá Slóvakíu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.