Portúgalski landsliðsmarkvörðurinn Gustavo Capdeville, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro og liðsfélagi Benedikts Gunnars Óskarssonar og Jóhannes Berg Andrasonar hefur opnað sig um erfiða lífsreynslu sína og sambýliskonu sinnar, Söru Oliveira, í viðtali við danska miðilinn TV Midtvest. Capdeville og sambýliskona hans hafa þrisvar sinnum misst barn á meðgöngu en eiga nú von á dreng í febrúar á næsta ári. Markvörðurinn, sem gekk til liðs við Holstebro frá portúgalska stórliðinu Benfica í sumar, segir að síðustu ár hafi verið afar erfið fyrir þau hjónaleysin. Í fyrsta skiptið höfðu þau þegar heyrt hjartslátt barnsins og ákveðið nafn áður en þau misstu það. Í kjölfarið fylgdu tvö önnur fósturlát án þess að læknar gætu fundið skýringu á því hvers vegna meðgöngurnar gengu ekki upp. Þrátt fyrir áföllin segist Capdeville aldrei hafa íhugað að gefast upp á draumnum um að verða faðir. „Við hugsuðum aldrei um að gefast upp,“ segir Capdeville í viðtalinu. Sara er nú komin sex mánuði á leið og samkvæmt Capdeville hefur meðgangan gengið vel. Parið hefur þegar ákveðið að sonurinn fái nafnið Tomás og er settur dagur í febrúar, skömmu eftir að Capdeville kemur heim frá heimsmeistaramótinu í handbolta sem fram fer í janúar. Capdeville segist hafa ákveðið að segja sögu þeirra opinberlega í þeirri von að hjálpa öðrum sem hafa gengið í gegnum sambærilega reynslu. Hann segir fósturlát enn vera mikið feimnismál í samfélaginu og að margir sem lendi í slíkri reynslu upplifi sig eina og eigi erfitt með að ræða sorgina. Portúgalinn vonast til að frásögn hans geti stuðlað að opnari umræðu og hjálpað öðrum fjölskyldum sem hafa gengið í gegnum sambærileg áföll.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.