Íslenska karlalandsliðið hefur leik í undankeppni Evrópumótsins 2028 á miðvikudagskvöldið þegar Úkraína kemur í heimsókn í Laugardalshöllina. Þjóðirnar hafa mæst fjórum sinnum í keppnisleikjum og er árangurinn jafn. Ísland hefur unnið tvo leiki og Úkraína tvo. Síðast mættust þjóðirnar í júní árið 2017 þegar íslenska liðið hafði betur, 34–26. Evrópska handknattleikssambandið, EHF, fjallar um viðureignina í upphitun sinni fyrir fyrstu umferð undankeppninnar. Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir Úkraínumenn vel skipulagða og kraftmikla og að íslenska liðið þurfi að mæta vel undirbúið til leiks. Íslenska landsliðið kom saman til æfinga í Safamýri í dag. Nokkur óvissa ríkir um leikmannahópinn en Ýmir Örn Gíslason er frá vegna meiðsla og Einar Þorsteinn Ólafsson er tæpur eftir að hafa orðið fyrir hnjaski í síðasta félagsliðsleik sínum. Snorri staðfesti í samtali við Handkastið í dag að staða Einars Þorsteins yrði metin eftir æfingu dagsins. Elliði Snær Viðarsson verður með gegn Úkraínu en fær frí frá síðari leik verkefnisins gegn Eistlandi af persónulegum ástæðum. EHF vekur jafnframt athygli á því að ellefu af tuttugu leikmönnum sem Snorri valdi í hópinn leika í þýsku Bundesligunni. Ísland er í riðli með Úkraínu, Eistlandi og Serbíu í undankeppni EM 2028. Leikur Íslands og Úkraínu hefst klukkan 19:30 á miðvikudagskvöldið. Íslenska liðið heldur síðan til Eistlands þar sem þjóðirnar mætast á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.