Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Daði Arnarsson, þjálfarar U17 ára landsliðs kvenna hafa valið 16 leikmenn sem taka þátt í undankeppni fyrir Evrópumótið 2027. Undankeppnin fer fram í Færeyjum dagana 26.–28. nóvember. Íslenska liðið leikur í fjögurra liða riðli ásamt gestgjöfum Færeyja, Ísrael og Tyrklandi en leikið verður þrjá daga í röð, fimmtudag, föstudag og laugardag. Landsliðshópurinn kemur saman til æfinga laugardaginn 21. nóvember áður en haldið verður til Færeyja miðvikudaginn 25. nóvember. Alls koma leikmennirnir 16 frá átta íslenskum félagsliðum. Valur og HK eiga flesta fulltrúa í hópnum, fjóra leikmenn hvort félag. Selfoss á tvo leikmenn en Fram, FH, ÍBV, ÍR og Grótta eiga einn fulltrúa hvert félag. Auk leikmannanna 16 hafa fjórir varamenn verið valdir sem eru til taks ef breytingar verða á hópnum fyrir undankeppnina. Landsliðshópur Íslands: Anja Gyða Vilhelmsen – Valur Varamenn: Sonja Guðrún Hafþórsdóttir – Víkingur Íslenska liðið hefur því tæpar þrjár vikur til að undirbúa sig fyrir verkefnið en fyrsti leikur liðsins í undankeppninni fer fram fimmtudaginn 26. nóvember.
Bára Ingibjörg Leifsdóttir – Selfoss
Bjartey Hanna Gísladóttir – Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir – FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir – HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir – HK
Glódís Dúna Óðinsdóttir – ÍBV
Helga Jenný Vigfúsdóttir – HK
Hjördís Gauja Kjartansdóttir – Selfoss
Katrín Ásta Jóhannsdóttir – ÍR
Kristín Einarsdóttir – HK
Sara Sigurvinsdóttir – Valur
Sara Sveinsdóttir – Valur
Soffia Helen Sölvadóttir – Grótta
Tinna Dröfn Hauksdóttir – HK
Þórhildur Káradóttir – Valur
Anna Bára Hjaltadóttir – Fram
Hulda Þorradóttir – FH
Matthildur Helga Ólafsdóttir – Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.