Það versta sem gæti gerst fyrir Alla er að tapa gegn litla bróður sínum
(Víkingur)

Það verður sannkallaður bræðraslagur í Olís-deild karla í kvöld þegar Víkingur tekur á móti Stjörnunni í lokaleik 10. umferðar deildarinnar. Bræðurnir Aðalsteinn Eyjólfsson og Sverrir Eyjólfsson verða þá hvor á sínum þjálfarabekknum en hitað var upp fyrir viðureignina í nýjasta þætti Handkastsins.

Aðalsteinn stýrir liði Víkings á meðan yngri bróðir hans, Sverrir, er við stjórnvölinn hjá Stjörnunni. Bæði lið eru í harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar en Víkingur er með sex stig á meðan Stjarnan er í 11. sæti með fimm stig.

Sérfræðingurinn telur að það verði áhugavert að fylgjast með taktískri baráttu bræðranna enda þekkist þeir afar vel.

„Ef einhver þekkir leikstíl Víkingana og hugmyndafræðinnar þá er það Sverrir Eyjólfsson. Hann veit alveg hvað Víkingarnir eru að reyna að leita af sóknarlega og varnarlega. Þetta verður ágætis skák en á sama tíma get ég alveg ímyndað mér það að það versta sem gæti gerst fyrir Aðalstein Eyjólfsson er að tapa gegn litla bróður sínum,“ sagði Sérfræðingurinn sem spáir Stjörnunni sigri.

Stymmi klippari tók undir að um mikla taktíska baráttu gæti orðið að ræða og líkti viðureigninni við atriði úr kvikmyndinni Waterboy með Adam Sandler.

„Ég held að þetta verði algjör refskák. Fyrir þá sem hafa séð Waterboy með Adam Sandler, þá verður þetta svipað. Þeir verða að horfa á hvorn annan. Sverrir er að fara gera eitthvað til að koma í veg fyrir það sem hann heldur að Alli sé að fara gera og ég get alveg séð Alla gera slíkt hið sama og jafnvel að hann hugsi sér að sleppa því að gera eitthvað sem hann heldur að Sverrir haldi að hann sé að fara gera,“ sagði Stymmi klippari sem spáði Víkingi sigri.

Sverrir Eyjólfsson ræddi einmitt komandi viðureign í viðtali við Handkastið á dögunum þar sem hann viðurkenndi að samskipti þeirra bræðra hefðu minnkað töluvert í aðdraganda leiksins.

Sverrir hefur áður sagt að hann hafi í gegnum tíðina leitað mikið til eldri bróður síns varðandi þjálfun og handbolta almennt enda sé Aðalsteinn afar reynslumikill þjálfari.

Nú verða bræðurnir hins vegar í sitthvoru horninu og ljóst að hvorugur ætlar að gefa neitt eftir. Auk þess að vera sérstakur fjölskylduslagur er leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í baráttunni í neðri hluta Olís-deildarinnar.

Leikur Víkings og Stjörnunnar hefst klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á Livey.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top