Hótanir um að fótbrjóta leikmann – lögregla rannsakar þýskt handboltafélag
Kristinn Steinn Traustason

Alvarlegt mál er komið upp hjá þýska handknattleiksfélaginu ASV Hamm-Westfalen, sem leikur í næstefstu deild Þýskalands. Félagið er til rannsóknar vegna gruns um tilraun til fjárkúgunar eftir að slóvenska leikmanninum Gasper Horvat var að sögn hótað að báðir fætur hans yrðu brotnir ef hann samþykkti ekki að rifta samningi sínum við félagið.

Samkvæmt þýska miðlinum SPORT BILD vill ASV Hamm-Westfalen losna undan samningi við hinn 28 ára gamla Gasper Horvat, þrátt fyrir að hann hafi skrifað undir samning við félagið í ágúst 2025 sem gildir til 30. júní 2027.

Á fundi Horvat með tveimur fulltrúum félagsins var honum að sögn lagt fram samkomulag um starfslok. Fundurinn tók hins vegar alvarlega stefnu þegar honum var hótað að ef hann neitaði að skrifa undir yrði séð til þess að hann fótbrotnaði á báðum fótum í íþróttahöllinni daginn eftir.

Horvat segir að hótanirnar hafi haft gríðarleg áhrif á sig.

„Ég er næstum tveir metrar á hæð en ég grét eins og lítið barn fyrir framan þessa tvo menn,“ sagði Horvat í samtali við SPORT BILD.

Í kjölfar fundarins ákvað Slóveninn að leita til lögreglu og kæra málið. Málið er nú komið á borð saksóknaraembættisins í Dortmund þar sem formleg rannsókn vegna gruns um tilraun til fjárkúgunar er hafin.

Henner Kruse, talsmaður saksóknaraembættisins í Dortmund, staðfesti við SPORT BILD að rannsókn væri hafin.

Lögregla framkvæmdi húsleitir á fimmtudagsmorgun á heimilum þriggja háttsettra aðila innan ASV Hamm-Westfalen. Við húsleitirnar lagði lögreglan hald á farsíma og annan rafeindabúnað sem verður hluti af rannsókn málsins.

ASV Hamm-Westfalen hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu vegna málsins. Þar kemur fram að félagið hafi ráðið lögmannsstofu til að gæta hagsmuna sinna. Félagið hyggst ekki tjá sig frekar opinberlega á meðan rannsókn yfirvalda stendur yfir.

Málið er enn á rannsóknarstigi og hefur ekki verið skorið úr um hvort refsivert brot hafi átt sér stað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top