Einar Bragi frábær í sigri Kristianstad
Kristianstad

Kristianstad vann góðan sigur á Lugi á heimavelli í kvöld, 40-36. Sigurinn var mikilvægur fyrir meistarana en þeir sitja núna í fimmta sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir tíu leiki og eru tveimur stigum á eftir toppliðunum Alingsås og Malmö en Kristianstad á leik til góða og getur því jafnað þau að stigum.

Einar Bragi Aðalsteinsson átti frábæran leik í liði heimamanna og var maður leiksins, hann skoraði níu mörk úr sautján skotum og gaf sex stoðsendingar að auki. Andri Erlingsson bætti við tveimur mörkum úr tveimur skotum og gaf eina stoðsendingu en Ólafur Guðmundsson var einnig í leikmannahópi liðsins á meðan Baldur Fritz Bjarnason var fjarri góðu gamni í kvöld.

Einn leikur fór fram í dönsku deildinni í kvöld þegar fallbaráttulið Ringsted tók á móti Fredericia og það reyndist erfitt verkefni fyrir heimamenn. Heimamenn voru öflugir í fyrri hálfleik og leiddu með einu marki, 15-14 en í síðari hálfleiknum hrundi allt hjá Ringsted og þeir töpuðu að lokum með níu mörkum, lokatölur urðu 25-34. Ísak Gústafsson skoraði eitt mark úr fjórum skotum fyrir heimamenn sem eru áfram í næstneðsta sæti með þrjú stig, stigi meira en Skive sem eru í neðsta sætinu.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 40-36 Lugi

Ringsted 25-34 Fredericia

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top