Slæm tíðindi fyrir Dani – Hoxer frá næstu vikur
MARIUS BECKER /AFP

Danska stórliðið Álaborg verður án hægri skyttunnar Mads Hoxer næstu fjórar til sex vikurnar eftir að leikmaðurinn meiddist á nára í leik gegn Skanderborg AGF um síðustu helgi.

Félagið staðfesti tíðindin í vikunni en Hoxer þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik viðureignarinnar. Frekari rannsóknir leiddu í ljós vöðvameiðsli í nára sem kalla á nokkurra vikna endurhæfingu. Meiðslin koma á afar óheppilegum tíma fyrir Álaborg sem er á leið inn í þéttskipaða leikjadagskrá bæði í dönsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.

Hoxer hefur verið einn af lykilmönnum Álaborgar á tímabilinu og skorað 112 mörk í 21 leik. Martin Larsen, liðsstjóri Álaborgar, segir að meiðslin séu mikið áfall fyrir félagið.

„Við erum auðvitað mjög leiðir yfir því sem gerðist, fyrst og fremst fyrir hönd Mads, sem hefur staðið sig mjög vel á tímabilinu. En auðvitað erum við líka svekktir fyrir hönd liðsins því fram undan er þétt dagskrá það sem eftir er nóvember og allan desember,“ segir Larsen á heimasíðu Álaborgar.

Hoxer sjálfur segir að það sé erfitt að þurfa að fylgjast með liðsfélögum sínum úr fjarlægð á næstu vikum.

„Meiðsli eru auðvitað hluti af leiknum en þau koma aldrei á góðum tíma. Ég hefði mjög gjarnan viljað leggja mitt af mörkum í þeim mikilvægu leikjum sem fram undan eru, bæði í deildinni og Meistaradeildinni.“

Hann segist nú einbeita sér að endurhæfingunni og stefna að því að snúa sterkari til baka. Meiðslin gætu einnig haft áhrif á möguleika Hoxer á að vera í leikmannahópi danska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í janúar.

Ef endurhæfingin tekur sex vikur verður hann ekki klár til leiks fyrr en undir lok desember, aðeins skömmu fyrir heimsmeistaramótið.

Álaborg vann Füchse Berlin 34–31 í Meistaradeildinni í gærkvöldi án Hoxer þar sem Sander Sagosen fór á kostum og skoraði níu mörk. Þrátt fyrir þann sigur er ljóst að fjarvera Hoxer verður mikið áfall fyrir danska stórliðið í komandi verkefnum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top