Landsliðsþjálfarinn vill fjölga leikjum – Arnar Daði ósammála
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslenska kvennalandsliðið lauk keppni á heimsmeistaramótinu um síðustu helgi er liðið vann Færeyjar í lokaleik sínum á mótinu með þremur mörkum 33-30. Ísland vann tvo leiki af sex í mótinu og voru margir jákvæðir punktar sem hægt var að taka úr frammistöðu liðsins á mótinu.

Arnar Pétursson mætti í viðtal við RÚV eftir lokaleikinn og vildi fá að tuða og nefndi að það væri hans ósk að hægt væri að fjölga leikjum á Íslandi í meistaraflokki. Rætt var um það hugmynd Arnars í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Það er spurning hvort þetta verður tekið upp á ársþingi HSÍ í vor. Vill hann fara í fjórfalda umferð eða fjölga liðum í deildinni? Þetta eru að lokum félögin í landinu sem ákveða þetta. Það er spurning hvort það sé stemning fyrir þessu eða hvort Arnar Pétursson sé bara einn um það að vilja fjölga leikjum. Ég hreinlega veit ekki hvort það sé stemning fyrir því hjá félögunum, leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum,” sagði Stymmi klippari áður en Kristinn Björgúlfsson gestur þáttarins tók til máls en hann er stofnandi Leikmannasamtakanna.

,,Fyrst og fremst eru þetta leikmennirnir sem eru í liðinu núna sem þurfa að stíga skrefið. Það er ekkert hægt að segja að kvennalið Stjörnunnar þurfi að æfa meira og spila fleiri leiki. Það eru leikmennirnir sjálfir sem þurfa að taka skrefið og ákveða hvað þær ætla sér að gera. Við getum ekki verið að fjölga leikjum og spilað fjörfalda umferð í átta liða deild, það þarf þá að stækka deildina. Stjarnan getur ekki spilað sex sinnum gegn Val, það gæti orðið helvíti súrt upp á lengri tíma litið.”

Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins og aðstoðarþjálfari kvenna- og karlaliðs Stjörnunnar í Olís-deildunum er ekki hrifinn af þeirri pælingu að fjölga eigi leikjum í meistaraflokki en 21 leikur er spilaður í Olís-deild kvenna til að mynda, auk bikarleikja og leikja í úrslitakeppnum.

,,Ég held að þetta snúist ekkert um að fjölga leikjum, hvað gerist í kjölfarið? Þá verða bara fleiri æfingar sem fara í endurheimt, fleiri frídagar eftir leiki. Ég held að þetta snústi miklu meira um gæði æfinga, gæði styrktaræfinga og allt sem tengist því,” sagði Arnar Daði og bætti við að það væri frekar að bestu félögin ættu að reyna fjölga sínum leikjum með því að ná langt í Evrópukeppnum eða reyna komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Leikmenn í landsliðskaliberi væru ekki að bæta sinn leik með því að fjölga leikjum gegn neðstu liðum deildarinnar hér heima.

Olís-deild kvenna fer aftur af stað í kvöld eftir HM en leiknar eru tvær umferðir í desember áður en enn ein pásan í deildinni byrjar. Margir þjálfarar í Olís-deild kvenna hafa undrast yfir þessum tveimur umferðum sem leiknar eru í desember.

Umræðuna um löngun Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara kvenna um að fjölga leikjum hér heima má heyra í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top