
Johannes Golla (Sina Schuldt / AFP)
Í desember árið 2024 var það gefið út að Johannes Golla leikmaður þýska landsliðsins og Flensburg-Handwitt myndi ganga í raðir MT Melsungen sumarið 2026. Samningur Golla við Melsungen var til fimm ára eða til loka leiktíðar 2030/2031. Á þeim tíma var talað um að félagaskiptin gætu mögulega gengið í garð síðasta sumar en ekkert varð úr því. Nú er hinsvegar orðrómur uppi um að Flensburg hyggist kaupa samning Golla upp við MT Melsungen og ekkert verði úr félagaskiptum línumannsins frá Flensburg til Melsungen. Já - þetta er afar athyglisvert mál í meira lagi. Margt bendir til þess að Flensburg missi Simon Pytlick til Fuchse Berlín strax í sumar fyrir háa upphæð en áður hafði verið tilkynnt að Simon Pytlick myndi ganga í raðir þýsku meistarana frá Berlín sumarið 2027. Flensburg eru sagðir ætla nýta upphæðina í að kaupa upp samning Golla hjá Melsungen og það geti farið svo að Johannes Golla leiki eftir allt saman ekkert með Melsungen RThandball segir frá því að Flensburg hafi boðið Melsungen 400.000 evrur í Johannes Golla. Samningur hans inniheldur uppsagnarákvæði upp á um 400.000 evrur. Johannes Golla var hluti af þýska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu um helgina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.