Stymmi spáir í spilin: 20. umferð Olísdeildar kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 20.umferð fari í Olís deild kvenna.

Stjarnan – Fram (Miðvikudagur 18:00)  /  Sigurvegari: Fram

Tækifærunum fyrir Stjörnuna til að halda sæti sínu í deildinni fer fækkandi. Þær unnu óvæntan sigur á Fram í síðasta leik fyrir jól sem mun án efa gefa liðinu mikið fyrir þennan mikilvæga leik. Fram voru stutt frá því að vinna Val í síðasta leik en misstu leikinn frá sér á síðustu sekúndum leiksins. Því miður fyrir Stjörnuna mun Fram vinna þennan leik og færa Stjörnuna enn nær falli í Grill deildina.

Selfoss – Haukar (Miðvikudagur 18:00)  /  Sigurvegari: Haukar

Selfoss vann frábæran sigur á Stjörnunni í síðustu umferð og komu sér úr fallsæti í fyrsta skipti í langan tíma. Því miður fyrir þær fá þær eitt heitasta liðið í Olís deildinni í heimsókn til sín í dag. Haukar munu vinna þennan leik nokkuð þægilega.

ÍBV – ÍR (Miðvikudagur 18:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

ÍBV eru fastar í öðru sæti meðan ÍR er í baráttu við Hauka um þriðja sætið. ÍBV voru ekki nógu góðar sóknarlega gegn Haukum á laugardaginn en þeim hefur gengið vel með ÍR í vetur. Það verður engin breyting á því í kvöld og ÍBV vinnur leikinn.

KA/Þór – Valur (Miðvikudagur 18:00)  /  Sigurvegari: KA/Þór

Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn á laugardaginn með laskað lið gegn Fram þar sem Lovísa fór á kostum. Ég sé Val alveg geta gefið lykilleikmönnum frí í þessum leik og sent ungt lið norður. KA/Þór mun ekki láta segja þér það tvisvar og vinna leikinn.

19.umferð (2 réttir)
18.umferð (3 réttir)
17.umferð (4 réttir)
16.umferð (3 réttir)
15.umferð (4 réttir)
14.umferð (4 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (3 réttir)
11.umferð (3 réttir)
10.umferð (3 réttir)
9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top