Rétti tímapunkturinn fyrir mig að gera breytingar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Berta Rut Harðardóttur hefur gert samning við Handknattleiksdeild Hauka um að leika með félaginu frá og með næsta tímabili. 

Berta Rut sem er uppalin Haukakona snýr því aftur heim á Ásvelli eftir fjögur ár erlendis þar sem hún hefur leikið með Holstebro Håndbold í Danmörku og Kristianstad HK í Svíþjóð.

Handkastið hafði samband til Svíþjóðar og spurði Bertu aðeins út í þá ákvörðun hennar að koma heim í sumar og ganga í raðir uppeldisfélagsins.

,,Mér fannst þetta bara rétti tímapunkturinn fyrir mig að gera breytingar. Eftir krefjandi en mjög skemmtileg ár úti var kominn tími að koma heim og taka næsta skref," sagði Berta Rut.

,,Ég átti góð samtöl við Hauka og uppbyggingin sem hefur átt sér stað síðustu ár heillaði mig. Hópurinn er metnaðarfullur og þjálfarinn líka, því tel ég þetta vera rétt skref fyrir mig til að halda áfram að bæta mig sem leikmann. Svo eru Haukar uppeldisfélagið mitt sem gerði ákvörðunina auðveldari."

Berta talar um skemmtileg en krefjandi ár erlendis síðustu fjögur ár. Hvernig hefur tími hennar erlendis verið?

,,Síðastliðin fjögur ár hafa verið krefjandi en á sama tíma mjög skemmtileg. Ég hef lært helling, kynnst mótlæti og erfiðum meiðslum, en einnig mikilli gleði og vaxið bæði sem leikmaður og manneskja. Ég tek fullt af góðri reynslu með mér heim frá síðustu árum."

,,Það er góð tilfinning að vera koma heim. Ég er ótrúlega spennt að koma heim, vera nálægt fólkinu mínu aftur og halda áfram að bæta minn leik. Það er auðvitað frábært að geta komið aftur í Hauka, það er aldrei gefið að geta komið heim í uppeldisfélagið sitt. Ég hlakka ótrúlega mikið til að mæta aftur á Ásvelli og leggja allt mitt af mörkum til að hjálpa félaginu að ná sínum markmiðum," sagði Berta Rut að lokum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top