Óvænt tap Óla Brim – Hannes og félagar í undanúrslit
Harald Dostal / AFP

Eins og við greindum frá í gær voru Íslendingarnir í Evrópu í eldlínunni urðu íslensku stelpurnar í Blomberg-Lippe meðal annars deildarmeistarar í Þýskalandi með sigri á Borussia Dortmund í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Á Ítalíu skoraði Ólafur Brim Stefánsson þrjú mörk í sjö marka tapi Junior Fasano gegn Brixen 33-26. Ólafur Brim og félagar í Junior Fasano er í 5.sæti deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir en einungis fjögur efstu lið deildarinnar fara í úrslitakeppnina. Ósigurinn er liðinu dýr í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en Brixen er í 12.sæti ítölsku deildarinnar af 14 liðum en baráttan er hörð um 4.sætið.

Valsarnir, Tumi Steinn Rúnarsson og Tryggvi Garðar Jónsson vann eins marka sigur á JAGS Vöslau 23-22 og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum austurrísku bikarkeppninnar. Tumi Steinn skoraði þrjú mörk en Tryggvi Garðar komst ekki á blað. Þjálfari liðsins er Hannes Jón Jónsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top