ÍR-ingarnir Jökull Blöndal og Patrekur Smári eru þessa dagana staddir í Þýskalandi á reynslu hjá úrvalsdeildarliðinu Gummersbach. Þjálfari Gummersbach er auðvitað Guðjón Valur Sigurðsson og íslensku landsliðsmennirnir Teitur Örn Einarsson og Elliði Snær Viðarsson eru leikmenn liðsins. Í frétt hjá ÍR handbolti á facebook segir að ferðin verði dýrmæt reynsla fyrir strákana enda séu þeir við æfingar hjá einu besta félagsliði heims á hápunkti tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.