Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, var að vonum ánægður með stórsigur Íslands á Portúgal og að EM væri tryggt. Eftir erfiða byrjun var það 5-1 vörn Íslands sem breytti gangi leiksins. ,,Við vorum svolítið á yfirkeyrslu í upphafi leiksins og ætluðum að skora 2 mörk í hverri sókn og vorum að fara illa með góð færi en það kom aðeins meiri ró með 5-1 vörinni." Með sigrinum hefur Ísland tryggt sér sæti á stórmóti fjórða árið í röð og var Arnar Pétursson sammála um að það væri sem skipti mestu máli í dag. ,,Við erum að skrifa smá sögu, fjögur stórmót í röð hefur ekki gerst áður. Við þurftum þriðja sætið til þess í erfiðum riðli og eftir miklar breytingar." Varðandi framhaldið vonast Arnar eftir því að hann geti fengið tíma með liðið í sumar en hann segir að það samtal eigi eftir að eiga sér stað við félagsliðin þeirra. Allt viðtalið við Arnar má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.