Dreymir um að landsliðið æfi saman í sumar
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins vonast til að geta kallað saman hóp af leikmönnum íslenska landsliðsins í sumar og æft sameiginlega utan fyrir fram gefin landsliðsglugga.

Þetta sagði Arnar í viðtali við Handkastið eftir að liðið hafði tryggt sér sæti á sitt fjórða stórmót í röð er liðið vann átta marka sigur á Portúgal á heimavelli 32-24 sem gulltryggði liðinu farseðilinn á Evrópumótinu sem fram fer í desember í lok árs.

Arnar var spurður í viðtalinu hvað tæki við hjá landsliðsþjálfurum fram að næsta stórmóti til að tryggja það að liðið verði á góðum stað þegar nýtt tímabil hefst hjá stelpunum okkar og í undirbúningi fyrir næsta stórmót?

,,Ég er að leyfa mér að dreyma um það að við fáum góðan tíma saman í sumar. Auðvitað þarf að ræða það við fullt af fólki en við erum aðeins farin að reyna púsla því saman. Við ætlum að reyna nýta sumarið vel til þess að þessar stelpur fái eins mikið útúr þessu blessaða sumarfríi sem er alltof langt hjá okkur. Síðan tekur við smá sumarfrí og síðan þurfum við að fylgja þessu virkilega vel eftir. Þetta er efnilegur hópur og þetta eru stelpur sem eru á besta aldri hvað það varðar að framtíðin er björt hjá þeim og þær eiga nóg eftir. Sumar hverjar eiga eftir að vera þarna í 8-12 ár og við þurfum núna að taka réttu skrefin og taka þau skref fyrir skref svo við séum að alltaf að bæta okkur."

Arnar benti til að mynda á færeyska landsliðið sem íslenska landsliðið tapaði tvívegis gegn í undankeppni Evrópumótsins.

,,Færeyska liðið sem við spiluðum gegn á miðvikudaginn er sama byrjunarlið og við spiluðum við 2022. Þetta er lið sem hefur verið að mótast og tekið ótrúlega flott og góð skref fram á við á hverju einasta ári og eru orðnar djöfulli öflugar. Við þurfum að gera svipaða hluti og þurfum að vinna vel allt árið um kring."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top