KA/Þór heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir næsta tímabil félagið tilkynnti nú rétt í þessu að Joan Rúnadóttir Johannesen hafi gengið í raðir félagsins. Hún kemur til félagsins frá Kyndil í Færeyjum. ,,Joan er spennandi færeyskur örvhentur leikmaður sem leikur í hægra horni en Joan sem er 19 ára gömul. Hún hefur staðið sig afar vel með Kyndil undanfarin ár og orðið meðal annars færeyskur meistari sem og bikarmeistari með liðinu," segir í tilkynningunni frá KA/Þór og þá er einnig því bætt við að hún hafi leikið um tíma með U17 liði Ajax København er hún stundaði nám við Københavns Idrætsefterskole en annars hefur hún leikið með Kyndil í Færeyjum fyrir utan fyrstu skrefin sem hún tók með Nørrebjert Strandhuse IF í Danmörku. Í tilkynningunni frá KA/Þór segir að Joan sé fastamaður í yngri landsliðum Færeyja en rétt eins og Agatha sem skrifaði undir hjá KA/Þór í vikunni er hún farin að banka fast á dyr A-landsliðsins þar sem hún hefur komið inn í æfingahóp í nokkur skipti. ,,Við erum afar spennt að fá hana Joan hingað norður og verður spennandi að fylgjast með framgöngu hennar og Agöthu en eins og flestir ættu að vita hefur færeyskur handbolti verið í gríðarlegri sókn og klárt að koma þeirra norður mun styrkja okkar öfluga lið enn frekar fyrir komandi baráttu næsta vetur." Á dögunum gekk færeyskur línumaður í raðir KA/Þórs og þá fékk liðið einnig nýjan markmann á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.