

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins valdi á dögunum 18 manna leikmannahóp sinn sem mætir Egyptu ytra í Kairó í maí í tveimur vináttulandsleikjum. Snorri Steinn gerir sjö breytingar á leikmannahópi Íslands frá vináttulandsleikjunum gegn Svíum í mars. En hvað með Egyptana, verða þeir með sitt sterkasta lið? ,,Þeir eru ekki búnir að tilkynna sinn hóp en ég held að þeir verði með sinn sterkasta lið. Mér skilst að þeir ætli eitthvað að skipta þessu á milli að besta liðið spili annan leikinn og síðan öfugt. Ég er lítið að pæla í því. Enn sem komið er hef ég meira verið að teikna þennan hóp upp og sjá hvað ég vil sjá frá þessum leikmannahópi og síðan helli ég mér yfir Egyptana í framhaldinu," sagði Snorri Steinn í viðtali við Handkastið. Egyptaland eru Afríkumeistarar síðustu fjögurra Afríkumóta þá lenti liðið í 5.sæti á HM 2025.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.