Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins hefur tilkynnt þá 18 leikmenn sem ferðast til Egyptalands og taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Egyptum í maí. Snorri Steinn hafði ýjað að því að töluverðar breytingar verði á landsliðshópnum frá síðasta verkefni er Ísland mætti Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi. Leikir Íslands gegn Eygptalandi fara fram miðvikudaginn 13.maí og föstudaginn 15.maí. Þjóðirnar mætast síðan í Laugardalshöllinni í tveimur vináttulandsleikjum í janúar í aðdraganda heimsmeistaramótsins á næsta ári. Snorri Steinn velur þrjá nýliða í hópinn, þá Jón Þórarinn Þorsteinsson markvörð FH, Jón Bjarna Ólafsson línumann FH og Tryggva Þórisson línumann Elverum. Auk þess koma Bjarki Már Elísson, Einar Bragi Aðalsteinsson, Elvar Ásgeirsson og Ísak Steinsson inn í hópinn frá síðasta verkefni gegn Svíþjóð. Þeir leikmenn sem ekki voru valdir í hópinn frá síðasta verkefni eru Björgvin Páll Gústavsson, Stiven Tobar Valencia, Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Janus Daði Smárason, Viggó Kristjánsson, Ýmir Örn Gíslason og Elliði Snær Viðarsson. Landsliðshópurinn: Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2) Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (118/123) Bjarki Már Elísson, Veszprem (137/445) Einar Bragi Aðalsteinsson, Kristianstad (2/0) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (36/8) Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24) Haukur Þrastarsson, Rhein Neckar Löwen (58/80) Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF Håndbold (37/72) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (43/151) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten (69/215) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (3/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (88/233) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (58/52) Tryggvi Þórisson, Elverum (0/0) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (27/41) Hópurinn kemur saman til æfinga í Epygtalandi mánudaginn 11. maí.
Markmenn:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.