Sjáðu stuðningsmannsveit ÍBV syngja niðrandi söngva um leikmann Hauka
Sævar Jónasson

Handkastið greindi frá því í gær að alvarlegt atvik hafi átt sér stað í öðrum úrslitaleik Vals og ÍBV í baráttunni um Íslandsmeistaratitil kvenna á þriðjudagskvöldið í Vestmannaeyjum. Þar hafi stuðningsmenn ÍBV látið niðrandi og fordómafull ummæli falla í garð Hafdísar Renötudóttur, markvarðar Vals og íslenska landsliðsins.

Valur leiðir einvígið 2-0 en liðin mætast í þriðja sinn í Valsheimilinu á morgun þar sem Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á heimavelli.

FORDÓMAFULL UMMÆLI STUÐNINGSMANNA ÍBV Í GARÐ HAFDÍSAR

Í fréttinni í gær kemur fram að atvikið hafi átt sér stað í upphafi seinni hálfleiks þegar hróp heyrðust úr stúkunni. Í myndskeiði sem Handkastið birti má heyra stuðningsmann ÍBV kalla: „Hafdís fílar skæri“, en það er vísun til kynlífs tveggja kvenna. Hafdís er samkynhneigð.

YFIRLÝSING FRÁ ÍBV: EINN STUÐNINGSMAÐUR Í TÍMABUNDIÐ BANN

Í kjölfar fréttar Handkastsins í gær fór að rigna yfir Handkastið skilaboð þar sem mátti sjá myndskeið af stuðningsmönnum ÍBV öskra niðrandi söngva um leikmann Hauka í undanúrslitaeinvígi ÍBV og Hauka sem ÍBV vann í oddaleik 3-2 eftir tvíframlengdan leik.

Í myndskeiðinu sem hægt er að sjá hér að neðan má heyra stuðningsmenn ÍBV syngja: ,,Embla er hlussa" í þann mund sem Embla Steindórsdóttir leikmaður Hauka var að taka vítakast í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top