

Danska handboltagoðsögnin Hans Lindberg hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir rúmlega 25 ára feril. Þetta kemur fram í tilkynningu frá danska félaginu HØJ Elite þar sem Lindberg hefur leikið síðustu tvö tímabil. Hans Lindberg var að ljúka sínu öðru tímabili með danska félaginu HØJ Elite en hann lék með þeim í dönsku B-deildinni í fyrra en liðið vann sig upp í dönsku úrvalsdeildina fyrir þetta tímabil. Liðið féll hinsvegar aftur niður í B-deildina eftir tap í umspilinu gegn Kolding. Hann lék níu tímabil með HSV Hamburg og síðan átta tímabil með Füchse Berlin áður en hann sneri heim til Danmerkur. Hann kveður handboltann sem markahæsti leikmaður í sögu þýsku Bundesligunnar með 3.115 mörk. Lindberg, sem er 44 ára gamall, mun þó ekki yfirgefa félagið alveg því hann tekur við starfi íþróttastjóra karlaliðs HØJ Elite. Í samtali við félagið sagði hann tímann réttan til að takast á við nýjar áskoranir eftir einstaklega farsælan feril. Á ferlinum vann Lindberg fjölda stórra titla með danska landsliðinu, þar á meðal Evrópumeistaratitla, heimsmeistaratitla og Ólympíugull. Þá varð hann einnig Evrópumeistari félagsliða og þýskur meistari á löngum ferli sínum í þýska handboltanum. Hornamaðurinn knái spilaði hvorki meira né minna en 308 landsleiki og skoraði yfir 750 mörk fyrir Dani. Aðeins Lars Christiansen hefur leikið fleiri landsleiki en Hans Óttar með danska landsliðinu en Hans Óttar fæddist í Danmörku en foreldrar hans, Tómas Erling Lindberg og Sigrún Sigurðardóttir eru bæði Íslendingar og léku handbolta með FH á sínum yngri árum. Í yfirlýsingu sinni sagði Lindberg að HØJ ætti sérstakan stað í hjarta hans þar sem handboltaferillinn hófst hjá félaginu. Hann sagðist hlakka til að nýta reynslu sína og þekkingu til að hjálpa félaginu að taka næstu skref í þróun sinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.