Það kom mörgum á óvart þegar Aron Pálmarsson tók við sem aðstoðarþjálfari hjá FH í febrúar síðastliðnum eftir að hafa rætt það margoft opinberlega að hann væri ekki á leið í þjálfun. Aron fékk mjög stórt hlutverk og stýrði sóknarleik FH en áhorfendur fengu að sjá að hann stýrði gjarnan leikhléum FH í úrslitakeppninni þar sem FH tapaði gegn Val í oddaleik á síðustu sekúndu í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Samkvæmt heimildum Handkastsins mun Aron Pálmarsson fá enn stærra hlutverk innan raða FH á næsta ári en hann er að öllum líkindum að taka við sem aðalþjálfari liðsins af Sigursteini Arndal. Sigursteinn Arndal, sem tók við þjálfun FH árið 2019 og leiddi FH til Íslandsmeistaratitils árið 2024, myndi þá fara í nýtt hlutverk og verða aðstoðarþjálfari liðsins undir stjórn Arons. Það verður spennandi að sjá hvaða vendingar verða í málinu næstu daga en FH hafa verið duglegir að styrkja hópinn fyrir næstu leiktíð en bæði Ágúst Guðmundsson, Antoine Óskar Pantano og Einar Rafn Eiðsson hafa gengið til liðsins undanfarna daga.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.