HSÍ mun ekki banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið
Johan Nilsson / TT News Agency / AFP

Á 69. ársþingi HSÍ var samþykkt ályktun þess efnis að fela stjórn HSÍ að útfæra reglur þess efnis að þjálfarar sem koma að þjálfun A-landsliða og U21 landsliða Íslands geti ekki samtímis gegnt hlutverki þjálfara eða verið hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða.

Mikil umræða hefur skapast um þessa tillögu innan hreyfingarinnar en hún var meðal annars rædd í hlaðvarpsþætti Handkastsins.

Stjórn HSÍ hefur nú ályktað um þessa tillögu og telur hún að vandlega athuguðu máli að ekki séu forsendur fyrir því að innleiða slíkar reglur að svo stöddu. Stjórnin telur aftur á móti mikilvægt að hreyfingin líti reglulega inn á við, meti starfshætti sína og ræði með opnum hætti þau álitaefni sem snúa að hagsmunum landsliða, félaga og handboltahreyfingarinnar í heild.

Stjórn HSÍ rökstuddi þessa afstöðu sína vel en stjórnin telur í fyrsta lagi að fjöldi starfanda afreksþjálfara sé takmarkaður og það sé markmið HSÍ að tryggja það að hæfustu og reynslumestu þjálfarar landsins starfi með landsliðum Íslands hverju sinni. Sú takmörkun sem ályktun ársþingsins gerir ráð fyrir myndi þrengja verulega þann hóp sem væri hægt að leita til við ráðningu landsliðsþjálfara.

Í öðru lagi telur stjórnin að þjálfarar og sér í lagi ungir og efnilegar þjálfarar, sem koma að þjálfun landsliða, líka að fá tækifæri til að þjálfa reglulega til þess að þróa sig. Slíkt fæst best með þjálfun hjá félagsliði, með reglulegum æfingum og leikjum en æfingaumhverfi landsliða bjóði eðli málsins samkvæmt ekki upp á slíkt.

Í þriðja lagi telur stjórnin mikilvægt að virða atvinnufrelsi þjálfara. Stjórnin bendir á að þjálfarastörf með landsliðum sé alla jafna ekki fullt starf og HSÍ hefur ekki fjárhagslega burði til þess að bjóða þjálfurum launakjör sem jafnast á við, eða gætu komið í stað þeirra tekna sem þeir afla sér með störfum hjá félagsliðum.

Loks telur stjórnin í fjórða lagi að hægt sé að treysta landsliðsþjálfurum sambandsins til að sinna starfi sínu af heilindum og vinna að því að koma í veg fyrir mögulega hagsmunaárekstra hverju sinni.

Þó svo að þessi afstaða stjórnar HSÍ komi ritstjórn Handkastsins ekki endilega á óvart er samt sem áður áhugavert að stjórnin ákveði að fara gegn tillögum ársþingsins. Ljóst er hinsvegar að stjórn hefur talið tillöguna óframkvæmanlega án þess að hún bitni á faglegu starfi landsliða Íslands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top