Íslensku stelpurnar fengu skell í fyrsta leik á HM U20
IHF

Íslenska U20 ára landslið kvenna hóf leik á heimsmeistaramótinu í nótt á íslenskum tíma þegar liðið mætti gríðarsterkur liði Svartfjallalands.

Eftir að hafa verið sjö mörkum undir í hálfleik 20-13 tapaði íslenska liðið leiknum með tíu mörkum 34-24.

Íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega og náði fjórum sinnum forystu á fyrstu sex mínútunum. Eftir það tóku Svartfellingar hins vegar öll völd á vellinum og með fjögurra marka kafla breyttu þeir stöðunni úr 3-4 í 7-4. Á þeim kafla fengu íslensku stelpurnar margar brottvísanir sem Svartfellingar nýttu sér vel.

Sterk vörn Svartfjallalands lagði grunninn að sigri liðsins og sóknarleikurinn gekk vel allan leikinn. Ivana Savić var atkvæðamest í fyrri hálfleik og skoraði alls sex mörk en Natalija Lekić sem var valin verðmætasti leikmaður Evrópumóts U19 árið 2025 stýrði sóknarleiknum af miklu öryggi. Natalija Lekić er talin einn mest spennandi leikmaður mótsins.

IHF

Munurinn jókst jafnt og þétt og var orðinn sjö mörk í hálfleik 20-13. Svartfjallaland hóf seinni hálfleikinn af krafti og náði strax tíu marka forystu. Mestur var munurinn þrettán mörk í stöðunni 33-20 en íslenska liðið minnkaði muninn undir lokin og skoraði fjögur af síðustu fimm mörkum leiksins og lokatölur 34-24.

Margir tæknifeilar hjá Íslandi reyndust liðinu dýrkeyptir, en liðið tapaði boltanum alls 30 sinnum í leiknum. Svartfjallaland nýtti sér það vel.

IHF

Guðrún Hekla Traustadóttir var atkvæðamest í liði Íslands með sjö mörk og Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði sex.

Um gríðarleg vonbrigði er að ræða fyrir íslenska liðið en Halldór Stefán Haraldsson sagði í viðtali við Handkastið fyrir leikinn að liðið stefndi á sigur í leiknum.

Ísland mætir Tékklandi í fyrramálið klukkan 6:00 á íslenskum tíma í öðrum leik sínum í riðlinum. Þar þurfa íslensku stelpurnar að gera töluvert betur til að knýja fram sigur en Tékkland er í þessum töluðu orðum að slátra liði Bandaríkjanna. Tvö efstu lið riðilsins fara áfram á mótinu en það var markmið liðsins fyrir mótið.

Markaskorar Íslands: Guðrún Hekla Traustadóttir 7, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 6, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 3, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Sara Rún Gísladóttir 1, Sara Lind Fróðadóttir 1, Hulda Hrönn Bragadóttir 1.

IHF

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top