Rosalega erfitt verkefni en við vildum vera nær þeim
IHF

„Þetta var þungur leikur,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari íslenska U20 ára kvennalandsliðsins, eftir 34-24 tap gegn Svartfjallalandi í fyrsta leik liðsins á heimsmeistaramótinu í samtali við Handkastið beint frá Jinzhong í Kína.

Íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega en lenti í vandræðum um miðjan fyrri hálfleik þegar nokkrar brottvísanir riðluðu leikskipulaginu.

„Við byrjuðum ágætlega en lendum síðan í því eftir rúmlega tíu mínútna leik að við fáum þrjár til fjórar brottvísanir og þær ná góðri forystu á þeim kafla. Út frá því er leikurinn nokkuð jafn, þær vinna eitt til tvö mörk á hverjum tíu mínútna kafla,“ sagði Halldór en staðan var 20-13 í hálfleik Svartfellingum í vil.

Íslensku stelpurnar fengu skell í fyrsta leik

Íslendingar reyndu mismunandi varnarkerfi gegn öflugu liði Svartfjallalands en þjálfarinn var ekki fyllilega sáttur við hvernig til tókst.

„Við spiluðum bæði 6-0 og 5-1 vörn í fyrri hálfleik. Mér fannst 5-1 vörnin ganga illa í fyrri hálfleik og ég var ekki nægilega ánægður með hana. Þær voru fljótar að fara í 7 á 6 og við vissum að þær væru mjög góðar í því. Við reyndum aftur að spila okkar 6-0 vörn í seinni hálfleik en mér fannst alltaf vanta aðeins upp á og aðallega vantaði að við værum nægilega ákveðnar að fara út í þær.“

Þrátt fyrir tapið sá Halldór margt jákvætt í sóknarleik íslenska liðsins.

„Sóknarlega fannst mér við eiga margar ótrúlega flottar sóknir þar sem við létum boltann rúlla vel á milli manna og vorum að búa til fullt af færum. Til að mynda fyrir Ásthildi í vinstra horninu sem skoraði sex mörk og þá var Guðrún Hekla einnig frábær í þessum leik," sagði Halldór en Guðrún Hekla var markahæst í liði Íslands með sjö mörk í leiknum.

Hann benti jafnframt á að íslensku stúlkurnar hefðu verið að glíma við mjög sterkan og reynslumikinn andstæðing.

„Við vorum að eiga við leikmenn sem eru 10 til 15 sentímetrum stærri og 10 til 20 kílóum þyngri, með reynslu úr Meistaradeild og öðru slíku. Þetta var rosalega erfitt verkefni.“

Halldór taldi að stress í fyrsta leik mótsins hefði haft áhrif á frammistöðuna, sérstaklega þegar kom að mistökum með boltann. „Við gerum okkur seka um alltof mörg mistök þar sem við erum hreinlega að missa boltann í fótinn á okkur og eitthvað sem hægt er að skrifa á stress í opnunarleik. En mér fannst þegar við létum okkar bolta rúlla þá vorum við að galopna þær og búa til færi.“

Þrátt fyrir svekkjandi niðurstöðu telur hann að liðið geti byggt á ýmsu jákvæðu úr leiknum. „Það eru margir jákvæðir punktar úr þessum leik sem við getum tekið en klárlega líka eitthvað sem við þurfum að fara yfir. Þetta er svekkjandi tap, við vildum vera nær þeim en við vissum að við værum að fara að spila við eitt af bestu liðunum.“

Næsta verkefni Íslands verður gegn Tékklandi og þar er mikið undir. „Fram undan er leikur gegn Tékkum sem er hreinn úrslitaleikur um annað sætið í riðlinum,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top