Mahé gagnrýnir IHF og rifjar upp mesta áfall ferilsins
Laurent Lairys / DPPI via AFP)

Kentin Mahé hefur upplifað flest það sem handboltamaður getur óskað sér. Frakkinn hefur orðið Ólympíumeistari, Evrópumeistari og tvívegis heimsmeistari með franska landsliðinu. Þrátt fyrir það stendur eitt augnablik upp úr sem eitt það erfiðasta á ferlinum.

Mahé rifjaði nýlega upp þegar hann fékk þær fréttir að hann hefði ekki verið valinn í franska hópinn fyrir Ólympíuleikana í París.

„Það var mikið áfall,“ sagði leikstjórnandinn og lýsti því hvernig hópurinn hefði verið kallaður saman í Maison du Handball þar sem tilkynnt var hvaða leikmenn færu á leikana.

„Við erum með mjög sérstaka athöfn þar sem allir sitja í sama salnum og síðan er tilkynnt hverjir fara. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.“

Mahé á að baki glæsilegan feril. Hann ólst upp að hluta til í þýskum handbolta, lék síðar með Gummersbach, Hamburg og Flensburg áður en hann eyddi sex árum hjá Veszprém í Ungverjalandi.

Með franska landsliðinu varð hann heimsmeistari 2015 og 2017, Ólympíumeistari árið 2020 og Evrópumeistari árið 2024.

Síðasta tímabil hjá VfL Gummersbach reyndist hins vegar erfitt. Mahé fékk takmarkað hlutverk á eftir þeim Julian Köster og Miro Schluroff og skoraði aðeins 36 mörk í 32 leikjum.

Frakkinn segir að þegar á móti blási reyni hann fyrst að skoða eigin frammistöðu.

„Ég er þeirrar skoðunar að maður eigi að bera ábyrgð á því sem maður gerir. Þegar hlutirnir ganga illa reyni ég að horfa hlutlægt á stöðuna og spyrja mig hvað ég þurfi að laga.“

Mahé lét einnig hafa eftir sér gagnrýni á Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, og telur að sambandið geri of lítið til að auka sýnileika íþróttarinnar á heimsvísu.

„Við erum með alþjóðasamband sem er fast í steinöldinni og gerir ekkert til að gera handboltann þekktari utan Evrópu.“

Hann telur að handboltinn gæti lært af knattspyrnunni og nefndi sérstaklega Ballon d'Or-verðlaunin sem fyrirmynd.

„Það þarf að sannfæra fólk um að þetta sé besti leikmaður heims á þessari stundu.“

Mahé bendir á að EHF Excellence Awards hafi að minnsta kosti skapað glæsilegan viðburð á Evrópuvísu, en telur að enn vanti sambærilega upphefð á heimsvísu.

„Það eru margir klárir einstaklingar að hugsa um hvernig hægt sé að stækka handboltann, en það er ekki að gerast á alþjóðlega sviðinu.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top