Íslenska stúlkna landsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri gerði jafntefli gegn Georgíu í fyrsta leik sínum í dag á opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð en liðið leikur seinni partinn gegn Hollandi. Á morgun leikur liðið síðan gegn Færeyjum í lokaleik sínum í milliriðli í keppni um 9.sætið á mótinu. Íslenska liðið var þremur mörkum yfir í hálfleik gegn Georgíu í morgun, 10-7. Ísland var með forystuna allan tímann í leiknum þangað til lítið var eftir og náði Georgíu að jafna metin í stöðunni 15-15. Kristín Einarsdóttir sem var markahæst í liði Íslands í leiknum með fjögur mörk kom Íslandi síðan yfir í stöðunni 16-15 en fékk síðan að líta rauða spjaldið stuttu síðar. Georgía nýtti sér það og jafnaði metin í lokasókn leiksins einum manni fleiri og tryggði sér þar með stig úr leiknum. Markaskorarar Íslands: Kristin Einarsdóttir 4, Helga Jenný Vigfúsdóttir 3, Sara Sveinsdóttir 2, Tinna Dröfn Hauksdóttir 2, Sara Sigurvinsdóttir 1, Matthildur Helga Ólafsdóttir 1, Elma Kolbrún Bjarnadóttir 1, Tanja Harðardóttir 1, Anja Gyða Vilhelmsen 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.