Það kom bara einhver lás á allt liðið og boltinn vildi ekki inn
IHF

U20 ára landslið kvenna tapaði í dag fyrir Egyptalandi 33-26 í undanúrslitum Forsetabikarsins á heimsmeistaramótinu í Kína. Með tapinu er ljóst að Ísland leikur um 19. sætið á mótinu.

Egyptaland hafði yfirhöndina stærstan hluta leiksins og náði mest tólf marka forskoti þegar staðan var 31-19. Munurinn varð að lokum sjö mörk, 33-26.

Ísland sá ekki til sólar gegn markvörðum Egyptalands

Íslenska liðið átti í miklum vandræðum með að nýta sín færi í leiknum. Liðið fór illa með dauðafæri og nýtti ekki eitt af fimm vítaskotum sínum. Þá munaði einnig miklu um markvörsluna en markverðir Egyptalands voru með 50% markvörslu á meðan íslensku markmennirnir vörðu aðeins 13% skota sem þær fengu á sig.

„Við töpuðum þessum leik á móti Egyptalandi fyrir okkur sjálfum. Heilt yfir spiluðum við frábæra vörn og sóknarlega líka og við erum að búa okkur til dauðafæri í hverri einustu sókn en boltinn vildi bara ekki inn,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari íslenska liðsins, eftir leik.

„Það kom bara einhver lás á allt liðið, því miður. Mér fannst við betra liðið á vellinum og með betri handboltamenn. Þetta er ótrúlega svekkjandi niðurstaða.“

Seinna í dag kemur í ljós hvort Ísland mætir Brasilíu eða Króatíu í leiknum um 19. sætið. Þrátt fyrir vonbrigðin segir Halldór liðið einbeitt að því að ljúka mótinu á sigri.

„Það er bara áfram gakk. Það er stór munur á því að enda í 19. eða 20. sæti og nú förum við að safna kröftum fyrir síðasta leikinn og ætlum að gefa allt í þann leik.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top