Hefðum hæglega getað unnið Spánverjana
HSÍ

Íslenska U20 ára karla landsliðið mátti þola 28-33 tap gegn Spáni í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Rúmeníu í dag. Spánverjar leiddu 16-12 í hálfleik en íslenska liðið svaraði af krafti eftir hlé, skoraði fimm fyrstu mörkin og komst yfir 17-16.

Þrátt fyrir sterkan kafla tókst Spánverjum að ná aftur tökum á leiknum og sigla að lokum fimm marka sigri. Ágúst Guðmundsson átti stórleik fyrir Ísland og skoraði 12 mörk í leiknum.

„Hvað á maður að segja? Við töpuðum gegn mjög öflugu og vel mönnuðu liði Spánar í hörkuleik í 58 mínútur og við hefðum hæglega getað unnið þennan leik. Mér fannst við sérstaklega góðir varnarlega framan af í leiknum en við hefðum getað keyrt aðeins betur á þá,“ sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari íslenska liðsins eftir leik.

Hann var ánægður með hvernig íslenska liðið leysti verkefnið gegn 6-0 vörn Spánverja en sagði að liðið hefði átt erfiðara með að bregðast við þegar Spánverjar breyttu yfir í framarlega 3-3 vörn.

„Við erum á sama tíma að leysa þeirra 6-0 vörn ágætlega en erum í brasi þegar þeir mættu okkur framarlega í 3-3 vörn sinni. Þar lendum við í vandræðum en síðan náum við að leysa úr því ágætlega þegar það fór að líða á seinni hálfleikinn.“

Spánverjar sterkari í dag

Að mati Ágústs réðu smáatriðin úrslitum. „Það sem fer illa með okkur í þessum leik eru margir tapaðir boltar og síðan fórum við illa með nokkur góð marktækifæri. En það voru margir mjög góðir kaflar og margir leikmenn að spila vel. Það er margt sem við getum byggt ofan á og tekið með okkur inn í mótið.“

Íslenska liðið fær nú einn hvíldardag áður en lokaleikur riðlakeppninnar fer fram á laugardag gegn Lettlandi. Sá leikur hefst klukkan 9:00 en Lettland er á botni riðilsins án stiga.

„Það verður frídagur hjá okkur á morgun og síðan tekur við leikur við Lettland á laugardaginn þar sem við þurfum að mæta 100% klárir, ná í alvöru frammistöðu og klára það,“ sagði Ágúst.

Sigur í lokaleiknum tryggir Íslandi sæti í milliriðli keppninnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top