

Handkastið greindi frá því fyrr í þessum mánuði að nýliðar Víkings í Olís-deild kvenna væru í viðræðum við serbneska línumanninn, Edita Nukovic um að leika með liðinu á komandi tímabili. Edita er með tvöfalt ríkisfang en hún er einnig með danskt vegabréf. Hún lék á síðasta tímabili með Jomi Salerno á Ítalíu og þar áður með HSG Bensheim/Auerbach í Þýskalandi. Tímabilið 2019/2020 lék hún með Aarhus í Danmörku. Víkingur í viðræðum við erlendan leikmann Edita varð 29 ára í sumar lék með Jomi Salerno í Evrópubikarnum á síðustu leiktíð en liðið fór alla leið í 16-liða úrslit keppninnar, skoraði Edita 25 mörk í keppninni. Jomi Salerno endaði í 2.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en liðið var ítalskur meistari ári áður. Samkvæmt heimildum Handkastsins virðast viðræður milli Víkings og leikmannsins ganga hægt en Handkastið hefur haft veður af því að leikmaðurinn hafi boðið sig í önnur lið hér á landi en hún er komin til Íslands. Virðist Edita ekki spennt fyrir því að ganga í raðir Víkings sem töpuðu öllum leikjum sínum á Ragnarsmótinu á dögunum, meðal annars með 19 og 20 mörkum gegn Selfossi og ÍBV. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins hafði Edita samband við ÍBV í vikunni og bauð sig til félagsins eftir leik ÍBV og Víkings. Víkingur sýndi hinsvegar góða frammistöðu í lokaleik sínum á Ragnarsmótinu í gær gegn KA/Þór en KA/Þór hafði betur 29-23 en það var mesti munurinn á liðunum í seinni hálfleik. Staðan var jöfn undir lok fyrri hálfleiks, 13-13.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.