Baksýnisspeglinum hent og horft til framtíðar
Emma Elísa Jónsdóttir

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir nýliða Víkings.

Síðasta tímabil:
Víkingur vann Grill66-deildina í fyrra eftir harða baráttu við Gróttu alveg fram að síðustu umferð deildarinnar. Víkingur féll úr leik gegn Fram í bikarkeppninni eftir framlengingu.

Þjálfarinn:
Aðalsteinn Eyjólfsson er sennilega reynslu mesti þjálfari deildarinnar en hann er að fara inn í sitt þriðja tímabil með liðið.

Breytingar:
Engar stórvægilegar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Víkings. Oft hafa nýliðar komið upp í Olís-deildina með mikið breytt til en Aðalsteinn treystir á concept-ið og hefur verið varfærinn á leikmannamarkaðnum og sótt leikmenn úr Grill66-deildinni.

Lykilmenn:
Ísak Óli Eggertsson, Ásgeir Snær Vignisson, Sigurður Páll Matthíasson

Fylgist með:
Ísak Óli Eggertsson var lang besti leikmaður Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð og stýrði sóknarleik Víkings afar vel. Olís-deildin er hinsvegar allt önnur skepna og það væri gaman að fylgjast með norðanmanninum spreyta sig í deild þeirra bestu eftir stjörnu tímabil í Grill66-deildinni í fyrra. Hefur fengið lyklavöldin af sóknarleik Víkings með tónlistarstjórann, Aðalstein Eyjólfsson á hliðarlínunni sem stýrir honum.

Framtíðin:
Sigurður Páll Matthíasson er einn af okkar efnilegustu línumenn sem getur bæði látið til sín taka varnar- og sóknarlega. Fékk smjörþefinn af Olís-deildinni fyrir þremur árum en er nú, reynslunni ríkari og þetta tímabil gæti orðið mikilvægt upp á framtíð Sigurðar.

Við hverju má búast:
Það man enginn eftir því hvenær Víkingur hélt sæti sínu í Olís-deildinni en nú á að sleppa því að líta í baksýnisspegilinn og horfa fram á við, í Virkinu. Víkingar eru bjartsýnir fyrir komandi tímabil og hafa sennilega aldrei mætt jafn stórir komandi inn í tímabil í Olís-deildinni sem nýliðar. Það hafa sennilega fá félög komið jafn oft upp úr Grill66-deildinni eins og Víkingur. Það er mikill meðbyr hjá félaginu og það yrði mikið áfall ef sagan endurtekur sig og félagið fellur enn og aftur niður um deild.

Sjá einnig:
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top