Skildi bjargvætturinn eftir loft í björgunarkútunum
HSB

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir Selfoss.

Síðasta tímabil:
Selfyssingar komu nánast öllum nema sjálfum sér líklega á óvart í fyrra og héldu sæti sínu í Olís-deildinni sem nýliðar og það nokkuð sannfærandi. Liðið var nánast aldrei í einhverri rosalegri fallbaráttu og var nær því að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni heldur en að falla undir lok tímabilsins. Það fór svo að liðið endaði í 10.sæti deildarinnar með 12 stig, tveimur stigum frá umspilssæti.

Þjálfarinn:
Örn Þrastarson tók við liðinu í sumar eftir að Spánverjinn, Carlos Martin Santos nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum og tók við Åranas í Svíþjóð. Örn er þar með að fara inn í sitt fyrsta tímabil sem þjálfari meistaraflokks karla en hann fáir þekkja betur til handknattleiksdeildar Selfoss heldur en Örn sem hefur verið meira og minna í þjálfun síðustu ár hjá Selfossi. Bæði í kringum karlalið félagsins, kvennalið félagsins og yngri flokka.

Breytingar:
Litlar breytingar hafa orðið á liði Selfoss frá síðustu leiktíð. Helstu breytingarnar eru þær að það hafa orðið þjálfarabreytingar á liðinu. Þá hefur Sverrir Pálsson lagt skóna á hilluna.

Lykilmenn:
Hannes Höskuldsson, Tryggvi Sigurberg Traustason, Alexander Hrafnkelsson

Fylgist með:
Anton Breki Hjaltason er stór og stæðilegur leikmaður sem fékk eldskírn í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Anton Breki er fæddur árið 2005 en hann var með tæplega þrjú mörk að meðaltali í leik í fyrra. Tímabilið 2023/2024 fékk hann örfáar mínútur í Olís-deildinni en nú mætir hann reynslunni ríkari og gæti tekið risastórt skref á sínum ferli, nýti hann þetta tímabil vel.

Framtíðin:
Ragnar Hilmarsson bráðefnileg skytta sem er fæddur árið 2009 og hefur verið í 2008 landsliði Íslands síðustu sumur, hann var meðal annars með U18 ára landsliðinu á Evrópumótinu í sumar. Hann var einungis einu sinni í hóp með Selfossi í fyrra sem voru mikil vonbrigði fyrir okkur í Handkastinu. Við trúum ekki öðru en að hann fái aukið hlutverk hjá liðinu í vetur.

Við hverju má búast:
ÍR-ingar féllu á stóra prófinu á sínu öðru ári í Olís-deildinni. Það er ekki fyrir alla að halda sér í deild þeirra bestu og hvað þá á sínu fyrstu tveimur árum. Nú verða Selfyssingar að vera meðvitaðir um hættuna sem fylgir því að vera í Olís-deildinni á öðru ári. Carlos Martin Santos var þjálfari ársins á síðustu leiktíð að mati Handkastsins og nú er hann horfinn af braut. Óreyndur þjálfari hefur tekið við og það getur brugðið til beggja átta. Við höfum áhyggjur að því að Selfoss gæti færst nær fallsæti frekar en að taka skrefið fram frá síðustu leiktíð.

Sjá einnig:
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top