Füchse hefur ekki áhuga að fá Lenny Rubin
Tom Weller / AFP

Füchse Berlin hefur ákveðið að sækja ekki svissneska landsliðsmanninn Lenny Rubin, sem er án félags eftir að samningi hans við TVB Stuttgart lauk. Rubin var einn þeirra leikmanna sem félagið skoðaði sem mögulegan arftaka Lasse Andersson.

Rubin er 2,05 metrar á hæð og þrítugur að aldri. Hann skoraði 118 mörk fyrir Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og hefur á undanförnum árum verið einn af öflugri leikmönnum svissneska landsliðsins.

Füchse ræddi við umboðsmenn Rubins og fjárhagsleg atriði voru ekki vandamálið. Ákvörðunin um að ganga ekki lengra byggðist eingöngu á íþróttalegum forsendum. Nicolej Krickau, þjálfari og íþróttastjóri Füchse, telur að Rubin henti ekki þeim hraða leikstíl sem liðið vill spila.

„Hann hefur staðið sig mjög vel í Bundesligunni. En hann er auðvitað allt önnur tegund leikmanns en við erum að leita að. Mín tilfinning er sú að hraðamunurinn yrði einfaldlega of mikill. Við spilum á mjög miklum hraða og þar held ég að Lenny passi ekki inn,“ sagði Krickau.

Dagur hefur áhyggjur af sínu gamla félagi

Félagið ætlar því ekki að fá leikmann bara til þess að fylla skarð Anderssons heldur bíða eftir þeim leikmanni sem það telur geta styrkt liðið verulega.

„Þetta er ekki fjárhagslegt mál heldur eingöngu íþróttalegt. Við viljum fá nýjan leikmann, en það þýðir einfaldlega ekkert að gera eitthvað sem færir okkur ekki greinilega fram á við. Við gerum það aðeins ef við finnum nákvæmlega þann leikmann sem við þurfum,“ sagði Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top