Fámennur hópur siglir inn í ólgusjó
Sigurður Ástgeirsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir lið KA/Þórs.

Síðasta tímabil:
KA/Þór voru nýliðar í Olís-deild kvenna á síðustu leiktíð og það varð snemma ljóst að liðið þyrfti ekki að hafa áhyggjur af fallbaráttunni. Liðið hóf síðasta tímabil af miklum krafti og sótti góð stig strax í upphafi tímabils. Liðið fór einnig alla leið í Final4 helgina í Powerade-bikarnum en tapaði gegn bikarmeisturunum í undanúrslitum keppninnar. 

Þjálfarinn:
Jónatan Magnússon er á leið inn í sitt þriðja tímabil sem þjálfari liðsins en hann tók við liðinu í Grill66-deildinni fyrir tveimur árum og kom liðinu upp í fyrstu tilraun án þess að tapa leik.

Breytingar:
Töluverðar breytingar hafa orðið á liði KA/Þórs frá síðustu leiktíð og margir lykilmenn hafa yfirgefið félagið. Félaginu hefur gengið erfiðlega að bæta við sig leikmönnum og hefur liðið verið fámennt á æfingum á undirbúningstímabilinu og þá hefur liðið verið fámennt í þeim æfingaleikjum sem liðið hefur tekið í aðdraganda mótsins.

Lykilmenn:
Lenka Ratvajská, Jóan Rúnadóttir, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir

Fylgist með:
Bergrós Ásta Guðmundsdóttir vann nánast öll einstaklingsverðlaun sem hægt var að vinna á lokahófi HSÍ á þar síðustu leiktíð eftir frábæra frammistöðu í Grill66-deildinni. Hún var í stóru hlutverki með U20 ára landsliðinu á HM í Kína í sumar og fékk eldskírn í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Mætir reynslu ríkari í nýtt tímabil og með mikla ábyrgð á herðum sér.

Framtíðin:
Jóan Rúnadóttir er bráðefnilegur Færeyingur sem KA/Þór fékk í sumar frá færeysku meisturnum í Kyndil. Er fastamaður í yngri landsliðum Færeyja og gætu sett svip sinn á leik KA/Þórs í vetur.

Við hverju má búast:
Bæti liðið ekki við sig fleiri leikmönnum á komandi vikum gæti þetta orðið langur og erfiður vetur. Liðið má alls ekki við meiðslum enda er hópurinn þunnur. Aldís Ásta Heimisdóttir kemur til baka eftir barnsburð seint á þessu ári og það mun hjálpa liðinu til muna. Það verður hörð barátta liðanna fyrir neðan 4.sætið og þar gæti KA/Þór lent undir. Það er nokkuð ljóst að mikið mun mæða á þeim lykil leikmönnum liðsins í vetur.

Sjá einnig:
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top