Sjö leikmenn sem settu tóninn í 1. umferð þýsku deildarinnar
Cornelius Poppe / NTB / AFP

Ein umferð er lokið í þýsku Bundesligunni en 2.umferðin hefst strax í kvöld. Nokkrir leikmenn báru af í fyrstu umferðinni og stimpluðu sig inn með stæl.

Þýski handboltamiðillinn handball-world.news tók saman sjö leikmenn sem vert sé að fylgjast sérstaklega með á komandi mánuðum. Þar er að finna bæði þekkta leikmenn, nýja liðsmenn og nokkur nöfn sem komu heldur betur á óvart í fyrstu umferð.

Einn leikur segir auðvitað ekki alla söguna og það er allt of snemmt að draga stórar ályktanir um tímabilið. Fyrsta umferðin gaf þó ákveðnar vísbendingar.

Aymeric Minne – Flensburg

Frakkinn Aymeric Minne þurfti ekki langan tíma til að láta vita af sér í nýju liði. Hann skoraði sex mörk í 33-31 sigri Flensburgar á Eisenach og stýrði jafnframt sóknarleik liðsins af miklum krafti. Minne kom til Flensburgar fyrir tímabilið og virðist ætla að verða stór hluti af sóknarleik þýska stórliðsins.

Erik Balenciaga – Melsungen

Spánverjinn Erik Balenciaga skoraði tvö mörk þegar Melsungen tapaði 31-33 fyrir Füchse Berlin en þrátt fyrir fá mörk hafði hann mikil áhrif á leik liðsins. Hann var einn þeirra sem drógu Melsungen aftur inn í leikinn og verður áhugavert að sjá hvort hann taki enn stærra hlutverk þegar líður á tímabilið.

Domen Makuc – Kiel

Domen Makuc átti afar góða frumraun með THW Kiel. Slóveninn skoraði sex mörk í 35-27 sigri Kiel gegn Lemgo og steig sérstaklega upp í síðari hálfleik. Eftir því sem leið á leikinn tók Makuc meiri stjórn á sóknarleiknum og sýndi hvers vegna miklar væntingar eru gerðar til hans.

Miro Schluroff – Gummersbach

Ef til vill var enginn leikmaður jafn áberandi og Miro Schluroff í 1. umferðinni. Gummersbach tapaði 31-33 gegn ríkjandi meisturum Magdeburg en Schluroff gerði sér lítið fyrir og skoraði 11 mörk – öll úr opnum leik. Magdeburg tókst að lokum að sækja sigurinn en Schluroff gerði varnarmönnum meistaranna lífið einstaklega erfitt.

Matthes Langhoff – Füchse Berlin

Eftir að Lasse Andersson yfirgaf Füchse Berlin varð ljóst að ákveðið skarð myndi myndast í sókn liðsins. Matthes Langhoff virðist hins vegar tilbúinn að fylla það skarð. Hann skoraði níu mörk í 33-31 sigri Berlínar á Melsungen og varð markahæsti leikmaður liðsins. Hann skoraði þar með meira en bæði Mathias Gidsel og Tim Freihöfer, sem skoruðu sjö mörk hvor.

Elias Newel – Göppingen

Elias Newel var einnig á meðal þeirra sem vöktu athygli. Göppingen vann 32-30 sigur á Erlangen og Newel skoraði sjö mörk. Þýski miðillinn bendir á að leikmaður á borð við Newel geti orðið afar mikilvægur fyrir Göppingen þegar kemur að því að leysa leikina þegar mest reynir á.

Daniel Rebmann – Balingen-Weilstetten

Hjá nýliðunum í Balingen-Weilstetten var það markvörðurinn Daniel Rebmann sem stal senunni. Balingen lagði Hamburg 30-26 að velli eftir jafnan fyrri hálfleik, 17-17. Rebmann kom inn eftir hlé og breytti leiknum. Hann varði níu skot í síðari hálfleik og átti stóran þátt í því að nýliðarnir gátu stungið af frá Hamburg.

Þýska deildin er því rétt að byrja en strax í fyrstu umferðinni komu nokkrir nýir kandídatar fram á sjónarsviðið. Stóru stjörnurnar eiga eflaust eftir að láta meira til sín taka þegar líður á veturinn – en það verður ekki síður áhugavert að fylgjast með hvort þessir sjö leikmenn haldi áfram að láta til sín taka.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top