Þýska Bundesliguliðið Handball Club Hamburg varð fyrir þungu áfalli um helgina þegar Moritz Sauter, leikstjórnandi og varafyrirliði liðsins, sleit krossband í vinstra hné. Sauter er liðsfélagi, landsliðsmannsins, Einars Þorsteins Ólafssonar. Sauter meiddist í 30-28 tapi Hamburg gegn Hannover-Burgdorf á laugardaginn. Meiðslin urðu án snertingar við mótherja þegar um 40 mínútur voru liðnar af leiknum og þurfti Sauter að yfirgefa völlinn. Nánari rannsóknir á mánudaginn staðfestu krossbandsslit og þarf hinn 23 ára gamli Sauter að gangast undir aðgerð. Aðgerðin er fyrirhuguð strax á föstudaginn samkvæmt félaginu. Félagið vonast til þess að Sauter verði orðinn fullfrískur fyrir upphaf næsta tímabils. Johannes Bitter, íþróttastjóri Hamburg, segir meiðslin mikið áfall fyrir félagið enda hafi Sauter þróast í að verða ein af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og tekið enn meiri ábyrgð eftir að hann varð varafyrirliði fyrir þetta tímabil. Forráðamenn Hamburg eru nú að meta hvernig bregðast eigi við fjarveru Sauter. Bitter hefur verið í samtali við þjálfarateymið um hvernig fylla eigi skarð hans og hvort ástæða sé til að styrkja leikmannahópinn. Sauter hefur jafnframt verið að banka á dyrnar hjá þýska landsliðinu og var valinn í hóp Alfreðs Gíslasonar fyrir tvo landsleiki gegn Danmörku í maí. Hamburg hefur farið illa af stað í Bundesligunni og er enn án sigurs eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins. Næsti leikur liðsins er gegn Göppingen á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.