ÍBV vann sinn fyrsta sigur í Olís-deild karla á tímabilinu þegar liðið lagði Selfoss, 30-27, í Vestmannaeyjum í kvöld. Selfyssingar leiddu lengst af en sterkur lokakafli Eyjamanna skilaði báðum stigunum. Bæði lið mættu stigalaus til leiks eftir 1. umferðina. ÍBV hafði tapað 38-29 gegn Haukum á Ásvöllum á meðan Selfoss tapaði 34-30 gegn Val. Leikurinn í kvöld var jafn og sveiflukenndur. ÍBV byrjaði betur og komst meðal annars í 6-4 en Selfyssingar unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn. Liðin skiptust á að hafa forystuna og staðan var 10-10 áður en Selfoss náði að komast yfir. Gestirnir voru marki yfir þegar flautað var til hálfleiks, 14-13. Selfoss byrjaði síðari hálfleikinn betur og komst í 19-16. Eyjamenn neituðu hins vegar að gefast upp og Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði tvö mörk í röð sem minnkuðu muninn í eitt mark, 19-18. Mikil spenna var næstu mínútur. ÍBV jafnaði í 20-20, Selfoss komst aftur yfir en Eyjamenn svöruðu og jöfnuðu í 21-21 og 22-22. Þá tóku heimamenn loks völdin. ÍBV komst yfir í 23-22 og síðan 24-22. Selfoss hélt sér inni í leiknum og minnkaði í 25-24 þegar rúmar sex mínútur voru eftir, en þá kom kaflinn sem réði úrslitum. Dagur Arnarsson skoraði fyrir ÍBV áður en Kristófer Ísak Bárðarson gerði tvö mörk í röð. Dagur bætti öðru marki við og skyndilega var staðan orðin 28-24. Selfoss náði ekki að brúa það bil og Eyjamenn fögnuðu að lokum 30-27 sigri. Dagur Arnarsson var langmarkahæstur ÍBV með níu mörk. Kristófer Ísak Bárðarson skoraði fjögur og Magnús Dagur Jónatansson og Sigtryggur Daði Rúnarsson þrjú mörk hvor. Magnús Dagur var að leika sinn fyrsta leik fyrir ÍBV eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá uppeldisfélagi sínu KA fyrr í vikunni. Hann fékk leikheimild með ÍBV 8. september og lét strax að sér kveða með þremur mörkum, þar á meðal síðasta marki leiksins þegar 13 sekúndur voru eftir. Hákon Garri Gestsson var atkvæðamestur hjá Selfossi með átta mörk. Valdimar Örn Ingvarsson skoraði fjögur en Anton Breki Hjaltason, Guðjón Baldur Ómarsson og Sveinn Ísak Hauksson gerðu þrjú mörk hver. ÍBV er því komið með sín fyrstu tvö stig á tímabilinu en Selfoss er áfram án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.