Tveir nýliðar í landsliðshópi Arnars Péturssonar
IHF

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, hefur valið 22 leikmenn sem koma saman til æfinga mánudaginn 21. september. Landsliðið mun æfa hér á landi út vikuna.

Þetta verður síðasta verkefni liðsins hérlendis fyrir Evrópumótið. Landsliðið kemur næst saman 18. október í Póllandi og leikur þar tvo vináttulandsleiki við pólska landsliðið.

Tveir leikmenn í hópnum eiga enn eftir að leika sinn fyrsta A-landsleik. Það eru þær Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka og Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, leikmaður Selfoss.

Landsliðshópurinn

Markverðir

  • Hafdís Renötudóttir, Valur (79/5)
  • Sara Sif Helgadóttir, Haukar (/)
  • Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0)

Aðrir leikmenn

  • Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukar (7/3)
  • Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thüringer HC (16/11)
  • Andrea Jacobsen, ÍBV (69/117)
  • Dana Björg Guðmundsdóttir, Larvik (21/50)
  • Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (74/103)
  • Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (36/138)
  • Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (41/84)
  • Embla Steindórsdóttir, Haukar (0/0)
  • Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, Selfoss (0/0)
  • Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (23/35)
  • Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (36/40)
  • Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19)
  • Lovísa Thompson, Benfica (40/74)
  • Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (10/1)
  • Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (13/12)
  • Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (48/200)
  • Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (6/12)
  • Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (6/2)
  • Thea Imani Sturludóttir, SCM Craiova (98/224)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top