Tap hjá Íslendingunum í Danmörku
Kristinn Steinn Traustason

Tvö Íslendingalið áttu leik í kvöld í dönsku deildinni, einn í kvennadeildinni og einn í karladeildinni.

Katrín Tinna Jensdóttir skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Horsens sem tapaði með minnsta mun fyrir København Håndbold á útivelli, 30-29. Horsens eru í ellefta sæti með tvö stig eftir fjóra leiki.

Botnlið Ringsted tapaði fjórða leiknum af fimm þegar liðið mætti Fredericia á útivelli í kvöld, lokatölur urðu 31-26 fyrir heimamenn. Ísak Gústafsson var áfram fjarri góðu gamni og það er ljóst að þeir sakna hans.

Úrslit kvöldsins:

København Håndbold 30-29 Horsens

Fredericia 31-26 Ringsted

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top