Marsenić útilokar önnur félög í Þýskalandi
Andreas Gora /AFP

Mijajlo Marsenić segir ekki koma til greina að ganga til liðs við annað þýskt félag þegar samningur hans við Füchse Berlin rennur út sumarið 2027.

Serbneski línumaðurinn hefur leikið með Füchse Berlin frá árinu 2018 og segist ekki geta hugsað sér að mæta Berlínarliðinu sem mótherji í þýsku Bundesligunni.

Partizan hefur verið nefnt til sögunnar sem líklegur næsti áfangastaður Marsenić og en félagið vill fá hann aftur, en hann hóf atvinnumannaferil sinn hjá serbneska félaginu. Ekki hefur þó verið staðfest hvar hann leikur eftir að dvöl hans hjá Füchse lýkur.

Miðað við orð Serbans, er þó nokkuð ljóst að hann ætlar sér ekki að spila í þýsku Bundesligunni á næsta ári.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top