Get trúað því að hún sé ekki sátt
HSÍ / Mummi Lú

Á dögunum tilkynnti Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins 22 leikmanna æfingahóp sem kemur saman til æfinga mánudaginn 21. september. Landsliðið mun æfa hér á landi út vikuna.

Þetta verður síðasta verkefni liðsins hérlendis fyrir Evrópumótið. Landsliðið kemur næst saman 18. október í Póllandi og leikur þar tvo vináttulandsleiki við pólska landsliðið. Rætt var um valið í nýjasta þætti Handkastsins.

Tveir nýliðar í landsliðshópi Arnars Péturssonar

,,Arnar Pétursson valdi tvo nýliða í æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins sem kemur saman í lok mánaðarins. Um er að ræða æfingaviku sem verður tekin hér á landi en Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka og Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, leikmaður Selfoss voru kallaðar inn í hópinn. Ég rak strax augun í það að það var engin Jóhanna Margrét sem fór hamförum í 1.umferðinni og var klárlega í einhverjum hefndarhug."

,,Ég ætla fylgjast með leik Jóhönnu Margrétar gegn KA/Þór um helgina, ég get trúað því að hún sé ekki sátt,” sagði Stymmi klippari meðal annars í þættinum.

Jóhanna Margrét fór mikinn í sigri Hauka gegn HK í 1.umferð Olís-deildarinnar og var meðal annars valin Sage by Saga Sif leikmaður umferðarinnar hér á Handkastinu. Jóhann skoraði 15 mörk í 26 skotum í leiknum.

Hún verður í eldlínunni á Akureyri í dag klukkan 17:00 þegar KA/Þór og Haukar mætast. Stymmi klippari og hans fjölskylda verða í sófanum heima í Garðabænum að fylgjast með þeim leik í beinni í Handboltapassanum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top