Selfoss kynnir tvo pólska leikmenn
Selfoss

Pólsku handknattleikskonurnar Malgorzata Trawczynska og Andzelika Petroll hafa samið við Selfoss. Handkastið greindi frá því í morgun að þær væru að ganga í raðir félagsins og höfðu verið að æfa með liðinu að undanförnu.

Nú hefur félagið tilkynnt komu þeirra beggja.

Pólskur liðsstyrkur á leið til Selfoss

Malgorzata er 29 ára gömul örvhent hægri skytta sem leikið hefur með pólsku liðunum Zagłębie Lubin, Piotrcovia og JKS Jarosław. Þá hefur Malgorzata einnig spilað í Ungverjalandi við góðan orðstýr með liðunum DKKA og Alba Fehérvár.

Andzelika er 25 ára gamall línumaður sem leikið hefur með SPR Gdynia og Szczypiorno Kalisz í Póllandi

Báðar komu þær til Íslands fyrir um viku síðan og hafa æft með Selfossi að undanförnu.

,,Það verður spennandi að fylgjast með þeim í næsta leik hjá stelpunum gegn Fram þann 1. október," segir í tilkynningunni frá Selfossi.

Selfoss er með tvö stig að loknum þremur leikjum í Olís-deild kvenna. Liðið vann Val í 1.umferðinni en hefur tapað gegn ÍBV og Gróttu í síðustu tveimur leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top