HM félagsliða í handbolta hefst í Egyptalandi í dag en tíu lið frá öllum sex heimsálfum taka þátt í mótinu sem lýkur með úrslitaleik þann 1. október. Barcelona mætir til leiks sem ríkjandi heimsmeistari félagsliða og tveir íslenskir landsliðsmenn eru í herbúðum spænska stórliðsins, þeir Viktor Gísli Hallgrímsson og Janus Daði Smárason. Barcelona vann Veszprém eftir framlengdan úrslitaleik á HM félagsliða í fyrra og tryggði sér þar með sinn sjötta heimsmeistaratitil félagsliða. Enginn hefur unnið keppnina oftar en Barcelona. Spænska stórliðið getur því bætt sjöunda titlinum í safnið í Egyptalandi og um leið varið titilinn frá því í fyrra. Barcelona er einnig ríkjandi Evrópumeistari eftir að hafa unnið Meistaradeild Evrópu í júní. Keppnin hefst í dag með tveimur leikjum í undankeppni. Veszprém mætir Sydney Uni frá Ástralíu og egypska liðið Zamalek leikur gegn Los Angeles Handball Club. Sigurvegararnir úr leikjunum tveimur tryggja sér sæti í riðlakeppninni. Barcelona hefur hins vegar leik á morgun, föstudag, þegar liðið mætir brasilíska liðinu E.C. Pinheiros. Barcelona er í A-riðli ásamt Pinheiros, Montada frá Marokkó og öðru liðinu sem kemur úr undankeppninni. Füchse Berlin er í B-riðli ásamt Al Ahly frá Egyptalandi, Burgan frá Kúveit og sigurvegara úr hinum leik undankeppninnar. Efsta lið hvors riðils fer beint í úrslitaleikinn þann 1. október en liðin í öðru sæti leika um bronsverðlaunin. Alls taka tíu lið þátt í HM félagsliða að þessu sinni, tveimur fleiri en undanfarin tvö ár. Mótið fer fram í New Administrative Capital í Egyptalandi og er þetta þriðja árið í röð sem keppnin er haldin þar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.