Wisla Plock sagt tilbúið að greiða hálfa milljón evra fyrir Simic
Philipp Szyza /AFP

Pólska stórliðið Wisla Plock hefur mikinn áhuga á að fá Nebojsa Simic, markvörð MT Melsungen, til félagsins og er sagt tilbúið að greiða háa fjárhæð fyrir Svartfellinginn. Þýska blaðið Sport Bild greinir frá því að Wisla Plock sé tilbúið að greiða að minnsta kosti 500 þúsund evrur til þess að kaupa Simic undan samningi hjá Melsungen.

Upphæðin jafngildir rúmlega 70 milljónum íslenskra króna.

Simic er 33 ára gamall en er samningsbundinn Melsungen til sumarsins 2029 og því þyrfti pólska stórliðið að greiða umtalsverða upphæð fyrir markvörðinn. Það er ekki aðeins kaupverðið sem vekur athygli.

Samkvæmt Sport Bild þénar Simic um 18 þúsund evrur eftir skatt á mánuði hjá Melsungen en Wisla Plock er sagt reiðubúið að greiða honum um 30 þúsund evrur eftir skatt á mánuði. Það samsvarar um 4,3 milljónum íslenskra króna á mánuði.

Simic hefur sjálfur staðfest að áhugi sé á honum frá öðrum félögum en vildi ekki staðfesta sérstaklega hvort Wisla Plock væri eitt þeirra. „Frá því að við unnum Evrópubikarinn hef ég fengið nokkur tilboð,“ sagði Simic við þýska miðilinn HNA.

Hann tók þó fram að Melsungen væri alltaf fyrsti kostur þegar kæmi að framtíð hans. Simic hefur leikið með Melsungen frá árinu 2017 þegar hann kom til félagsins frá IFK Kristianstad í Svíþjóð. Hann hefur síðan orðið einn af lykilmönnum liðsins og í miklu uppáhaldi stuðningsmanna félagsins.

Melsungen og Wisla Plock leika saman í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á þessu tímabili. Liðin mættust í Póllandi í síðustu viku þar sem Wisla Plock vann dramatískan 25-24 sigur. Reynir Þór Stefánsson, liðsfélagi Simic hjá Melsungen, var markahæstur þýska liðsins í þeim leik með sjö mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top