Stórleikur í átta liða úrslitum danska bikarsins
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP

Dregið hefur verið í átta liða úrslit Santander Cup, dönsku bikarkeppninnar í handbolta, en fjögur lið tryggja sér sæti á Final4-helgi keppninnar.

Danska stórliðið Álaborg fær erfiðan útileik gegn Sønderjyske. Álaborg tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum með 30-25 sigri gegn HØJ Elite í gærkvöldi.

Þá verður boðið upp á áhugaverðan slag þegar Bjerringbro-Silkeborg tekur á móti Skjern. Íslendingalið, TTH Holstebro fær Fredericia í heimsókn.

Eitt sæti í átta liða úrslitunum er enn óráðið. Sigurvegari leiks Skive og Skanderborg AGF mætir Mors-Thy en með Skanderborg leikur Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Leikur Skive og Skanderborg fer ekki fram fyrr en 29. september.

Átta liða úrslit Santander Cup:

Skive/Skanderborg AGF – Mors-Thy
TTH Holstebro – Fredericia
Sønderjyske – Álaborg
Bjerringbro-Silkeborg – Skjern

Sigurvegarar leikjanna fjögurra tryggja sér sæti á Final4-helgi dönsku bikarkeppninnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top