Fyrrum Evrópumeistari genginn til liðs við HØJ
VLADIMIR SIMICEK / AFP

Danska félagið HØJ Elite hefur samið við sænska leikmanninn, Valter Chrintz sem hefur verið lengi frá keppni vegna meiðsla.

Orðrómur um félagaskiptin komst á kreik undir lok ágúst en HØJ hefur nú staðfest komu hins 26 ára gamla Valter Chrintz.

Chrintz hefur glímt við meiðsli undanfarin ár og er enn að vinna að endurkomu sinni á handboltavöllinn.

Kveður Berlín eftir þrjú krossbandaslit á sex árum

„Mig langaði að koma til HØJ Elite þar sem ég fékk mjög góða tilfinningu fyrir félaginu í heild og fólkinu í kringum það. Ég vona að eftir langt meiðslatímabil geti ég snúið aftur og spilað handbolta á því getustigi sem ég hef áður sýnt og auðvitað að ég geti haldist heill til lengri tíma,“ sagði Chrintz við heimasíðu HØJ.

Chrintz þótti einn efnilegasti hægri hornamaður Svíþjóðar og varð Evrópumeistari með sænska landsliðinu árið 2022.

Hann lék lengi með Kristianstad í heimalandinu áður en hann hélt til Þýskalands og gekk til liðs við Füchse Berlin. HØJ fær því reynslumikinn leikmann í sínar raðir en fyrst um sinn verður áherslan lögð á að koma Chrintz aftur í fullt stand.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top